Komdu í fordrykk með okkur frá kl. 17:00. Smakkað verður eitt glas af Barbaresco og eitt af Barolo með aperitivo-bakka og spjöllum um hvað einkennir vínin frá hvoru svæði. Föstudaginn 4. desember kl. 17:00. Bar Bitter, Kirkjutorgi. 6.900 kr. á mann · Tvö glös og aperitivo-bakki. Tvö svæði, ein þrúga Bæði vínin eru gerð úr Nebbiolo-þrúgunni og koma úr Langhe-hæðunum í Piemonte á Norður-Ítalíu, sitt hvorum megin við bæinn Alba. Barolo þarf að þroskast í minnst 38 mánuði áður en það fer í sölu, þar af 18 í tunnu. Barbaresco þarf 26 mánuði, þar af níu í tunnu. Hvað það þýðir í glasinu ræðum við á föstudaginn. Barbaresco og Barolo hjá okkur Cantina del Pino Barbaresco Ovello 2021: Ovello er ein af stærstu og sögufrægustu ekrunum í Barbaresco-þorpinu sjálfu. Trediberri Barolo del Comune di La Morra 2022: Trediberri var stofnað árið 2007 í La Morra og er eitt skærasta nýja vínhúsið í Barolo. Bar Bitter: aperitivo í Kvosinni. Barolo: konungur vína, vín konunga. Allir viðburðir.