Domaine Arlaud í Morey-Saint-Denis er eitt af eftirtektarverðustu fjölskylduhúsum Côte de Nuits. Joseph Arlaud stofnaði húsið árið 1942 og í dag stýrir Cyprien Arlaud því ásamt systkinum sínum. Ræktunin er lífræn og lífefld, og stór hluti vínekranna er plægður með hestum. Vínin eru hrein og fínleg og sýna vel hvaðan þau koma, frá einföldu Aligoté alla leið upp í Grand Cru. Við bjóðum ykkur að smakka átta vín frá Arlaud á einu kvöldi og fara um leið upp stigann í Búrgúndí. Sjö af átta vínum kvöldsins koma úr árgangi 2023 svo þið finnið vel hvernig vínin breytast eftir því sem ofar dregur í flokkunarkerfi Búrgúndí. 1. 2025 Bourgogne Aligoté — ferskt og líflegt, gott til að opna kvöldið 2. 2023 Bourgogne Roncevie 3. 2024 Bourgogne Roncevie — sama ekra í tveimur árgöngum hlið við hlið 4. 2023 Côte de Nuits-Villages 5. 2023 Morey-Saint-Denis — vín úr heimaþorpi hússins 6. 2023 Chambolle-Musigny — þekkt fyrir fínleika og ilm 7. 2023 Morey-Saint-Denis 1er Cru Les Blanchards 8. 2023 Charmes-Chambertin Grand Cru — hápunktur kvöldsins