Aldurhnigin vín, umhellt í karöflur og borin fram blint í fjórum umferðum. Gestir höfðu listann – en ekki röðina. Ítalski vínklúbburinn við störf hjá Santé. Ítalski vínklúbburinn kom saman hjá Santé í Skeifunni þriðjudagskvöldið 20. október. Á dagskrá voru aldurhnigin vín, flest frá seinni hluta síðustu aldar, og fyrirkomulagið var óvenjulegt: öllu var umhellt í karöflur og borið fram blint í fjórum umferðum. Gestir höfðu vínlistann fyrir framan sig en vissu ekki í hvaða röð vínin kæmu. Verkefnið var því í þrepum – fyrst að greina land, síðan hérað og loks að para hvert glas við rétt vín af listanum. Kaflaskilin voru ákveðin fyrirfram, en viðfangsefni hvers kafla var aðeins upplýst þegar honum lauk. Það gekk, eins og við mátti búast, svona upp og ofan. Undur kvöldsins Undrið kom frá Bordeaux: Château Haut-Bailly 1970. Vínið var augljóslega fullþroskað, afar ljóst að lit og fínlegt – svo fínlegt að ágiskanir gesta fóru um víðan völl. Nefnt var Búrgúnd, nefnt var Piemonte og ýmislegt þar á milli. Enginn nefndi Bordeaux. Rúbínrauður litur á Haut-Bailly 1970 – yfir korti af Búrgúnd, sem nokkrir töldu einmitt rétta svarið. Rúmlega hálfrar aldar gamalt vín frá Graves, sem hefur lagt frá sér kraftinn en haldið glæsileikanum, minnti fleiri á Pinot Noir eða Nebbiolo en Cabernet. Það er kannski besta hrós sem gamalt Bordeaux getur fengið. Château Haut-Bailly 1970: „Fullþroskað, afar ljóst og fínlegt – og enginn giskaði á Bordeaux.“ Hérað: Graves (Léognan). Ágiskanir: Burgúnd → Piemonte. Bordeaux-ágiskanir: 0. Listinn sem lá fyrir. Röðin í glösunum var leyndarmál kvöldsins. Athugasemdirnar eru úr fundarboðinu. Ribera del Duero: Pesquera Gran Reserva 1995; Pesquera Gran Reserva 1996; Pesquera Millenium, magnum 1996; Alenza Gran Reserva 1995 (Gerð samkvæmt ströngustu sérvizku Alejandrós sáluga); Alenza Gran Reserva, magnum 1996 (Fróðlegt að bera saman Excelente-árgangana tvo); Vega Sicilia Valbuena 1998 (Hæst skrifaða Valbuena áratugarins); Pérez Pascuas Gran Selección 1995 (Toppvínið frá Páskabræðrum í Pedrósu); Valduero Gran Reserva 12 ára 1996 (Upphaf 12 ára lúxuslínunnar frá Valduero). Priorat · Navarra · Somontano: Clos de l'Obac, Priorat 1998; Guelbenzu Evo, Navarra 1998 (Góður árgangur af gömlum kunningja); Guelbenzu Lautus, Navarra 1998 (Toppvín Guelbenzu-fjölskyldunnar); Blecua, Somontano 1998 („Watch out Latour“). Bordeaux: Ch. Calon Ségur, St. Estèphe 2000 (94/100 RP); Ch. Léoville Poyferré, St. Julien 2000 (97/100 RP); Ch. Grand-Puy-Lacoste, Pauillac 2000 (95/100 RP).