Stóra Búrgúndarsendingin kom í hús fyrir viku: tæplega sex þúsund flöskur frá tíu vínhúsum, allt frá Marsannay nyrst í Côte de Nuits suður til Chassagne-Montrachet. Í tilefni af því pöruðum við eitt vín við hvern jólasvein. Jólasveinarnir koma til byggða einn af öðrum frá 12. desember og sá síðasti á aðfangadag. Þrettán nætur, þrettán vín. Við byrjum rólega og endum á því besta eins og vera ber. 12. desember, Stekkjarstaur: Fyrstur til byggða og stirður í fótunum. Við byrjum rólega á safaríku Pinot Noir af hæðunum fyrir ofan Côte de Nuits – hversdagsvíni jólanna. Vínið: Aurélien Verdet Bourgogne Hautes Côtes de Nuits Le Prieuré 2024. 13. desember, Giljagaur: Felur sig í giljum og skorningum. Fixin felur sig líka – lítið þorp norðarlega í Côte de Nuits sem fáir þekkja en fleiri ættu að kynnast. Vínið: Lignier-Michelot Fixin Champs de Vosger 2024. 14. desember, Stúfur: Minnstur þeirra allra og fær því stærstu flöskuna – magnum, einn og hálfan lítra. Vínið: Aurélien Verdet Côte de Nuits-Villages La Prétière 2023, magnum. 15. desember, Þvörusleikir: Sleikir sleifina. Þetta fer í sósuna og það sem eftir er af flöskunni fer í glasið hjá kokkinum. Vínið: Edouard Confuron Coteaux Bourguignons 2024. 16. desember, Pottaskefill: Skefur pottana. Hvítt Búrgúndarvín í humarsúpuna og annað glas með henni. Vínið: Jean-Charles Fagot Bourgogne Côte d’Or Les Louères 2024. 17. desember, Askasleikir: Sleikir askana tóma. 1er Cru frá Chassagne-Montrachet, hvítvín sem enginn skilur eftir í glasinu. Vínið: Fontaine-Gagnard Chassagne-Montrachet 1er Cru Les Chenevottes 2024. 18. desember, Hurðaskellir: Skellir hurðum svo allt heimilið vaknar. Nuits-Saint-Georges er kraftmikið og fer ekki fram hjá neinum. Vínið: Georges Noëllat Nuits-Saint-Georges 2024. 19. desember, Skyrgámur: Gleypir skyrið úr sánum. Meursault er þekkt fyrir mjúka og rjómakennda fyllingu. Casse-Têtes þýðir heilabrot en þetta er auðvelt val. Vínið: Tessier Meursault Les Casse-Têtes 2024. 20. desember, Bjúgnakrækir: Krækir í bjúgun og hangikjötið. Volnay er fínlegt og létt á fæti, rauðvín sem ræður við reykinn og saltið. Vínið: Darviot-Perrin Volnay 1er Cru La Gigotte 2024. 21. desember, Gluggagægir: Gægist inn um gluggana í leit að einhverju fallegu. Hér er það: 1er Cru-hvítvín frá Chassagne-Montrachet. Vínið: Morey-Coffinet Chassagne-Montrachet 1er Cru La Romanée 2024. 22. desember, Gáttaþefur: Með nefið stóra. Vosne-Romanée er þorpið sem nefið elskar, ilmríkt og fínlegt Pinot Noir. Vínið: Georges Noëllat Vosne-Romanée 2024. 23. desember, Ketkrókur: Krækir í ketið á Þorláksmessu. Gevrey-Chambertin er þétt og kraftmikið, tilvalið með rjúpunni, öndinni og hreindýrinu um jólin. Vínið: Edouard Confuron Gevrey-Chambertin Les Seuvrées 2024. 24. desember, Kertasníkir: Kemur síðastur á aðfangadag og eltir kertaljósin. Vosne-Romanée 1er Cru fyrir kvöldið sjálft. Vínið: Georges Noëllat Vosne-Romanée 1er Cru Les Chaumes 2024. Og fyrir þá sem hafa verið sérstaklega stilltir í ár kom Armand Rousseau líka með sendingunni. Armand Rousseau Gevrey-Chambertin 1er Cru Clos Saint-Jacques 2024: Eitt eftirsóttasta 1er Cru Búrgúndar. Sendu okkur fyrirspurn. Allt sem kom Öll vínin í sendingunni eftir vínhúsum frá norðri til suðurs. Smelltu á vínhúsið til að lesa meira um það. Vínhúsin: Lignier-Michelot, Armand Rousseau, Aurélien Verdet, Georges Noëllat, Edouard Confuron, Darviot-Perrin, Tessier, Jean-Charles Fagot, Fontaine-Gagnard, Morey-Coffinet.