Árið 1979 teiknaði auglýsingamaðurinn Peter Wibroe jólakort og veggspjald fyrir Tuborg: jólasvein og hreindýr í bláu snjólandslagi með kveðjunni „Glædelig jul og godt Tub’år“. Þar sem enginn jólabjór var þá til hjá fyrirtækinu var myndin gerð fyrir hinn hefðbundna græna Tuborg. Ári síðar fór myndin á ölbíla bruggverksmiðjunnar og sló svo rækilega í gegn að árið 1981 var sjálfur jólabjórinn, Tuborg Julebryg, settur á markað með myndinni á miðanum. Árið 1984 var Wibroe beðinn að gæða myndina lífi fyrir kvikmyndahús. Hann fékk tónskáldið Peter Bach til liðs við sig og úr varð rúmlega tuttugu sekúndna teiknimynd við lagið Jingle Bells, þar sem tónlistin segir alla söguna án orða. Wibroe segist ekki muna hvers vegna lagið varð fyrir valinu, en man þó glöggt hversu ódýr myndin var í framleiðslu og hvernig bíógestir fögnuðu þegar hún birtist fyrst á hvíta tjaldinu. Hún hefur verið sýnd fyrir hver jól síðan og er lífseigasta auglýsing í sögu Danmerkur. Vinsældirnar urðu til þess að árið 1990 gerði Tuborg útgáfudaginn að sérstökum J-degi. Þá kom bjórinn í sölu annan miðvikudag í nóvember klukkan 23:59. Árið 1999 var deginum hins vegar flýtt fram á fyrsta föstudag í nóvember klukkan 20:59, ekki síst vegna þrýstings frá kennurum og skólastjórnendum sem höfðu fengið sig fullsadda á syfjuðum nemendum á fimmtudagsmorgnum.