Sendingin frá Kopke kom í hús í dag: þrettán portvín frá elsta portvínshúsi heims, allt frá Fine Ruby upp í Colheita frá 1976. Rétt fyrir jólin eins og til stóð. Tunnusalur Kopke í Vila Nova de Gaia handan Douro-árinnar frá Porto. Það sem er vert að skoða Kopke Colheita 1976: Fimmtíu ára í ár. Colheita er tawny frá einni uppskeru, þroskað í eikartunnum, og árið er málað á flöskuna. Gjöfin handa þeim sem fæddust 1976. Í gjafakassa. Kopke 30 ára Tawny: Talan er meðalaldur vínanna í blöndunni og liturinn lýsist með árunum. Í gjafakassa. Kopke Quinta de São Luiz Vintage 2009: Vintage er aðeins gert í bestu árum og þetta kemur eingöngu af bestu ekrum Quinta de São Luiz, jarðar Kopke í Douro-dalnum. Það batnar enn með árunum. Í gjafakassa. Kopke 10 ára hvítt portvín: Portvín sem fáir þekkja – gert úr hvítum þrúgum og þroskað í eik. Kalt sem fordrykkur eða í Porto Tónico hér fyrir neðan. Í hvítu línunni komu líka 20 og 30 ára vín í hálfflöskum auk Colheita 2008. Portvín á hálfri mínútu Portvín kemur frá Douro-dalnum í Norður-Portúgal. Vínberjabrandíi er bætt út í meðan vínið er enn að gerjast. Gerjunin stöðvast, sætan situr eftir og vínið verður um 20% að styrk. Ruby er sett ungt á flösku og heldur rauða litnum og ávextinum. Tawny þroskast árum saman í eikartunnum og verður gulbrúnt. Colheita er tawny frá einu ári og Vintage er aðeins gert í bestu árum. Opin flaska af tawny geymist vikum saman í ísskápnum. Vintage er best að klára sama kvöld eða daginn eftir – sem er sjaldnast vandamál. Quinta de São Luiz í Douro-dalnum þar sem öll Douro-vín Kopke eru gerð. Fjórar uppskriftir fyrir jólin Porto Tónico (Fordrykkur · 1 glas · 2 mínútur). Hráefni: Klaki, 5 cl Kopke 10 ára hvítt portvín, 10 cl tónik, Appelsínubörkur, Myntulauf. Fylltu hátt glas af klaka. Helltu portvíninu yfir og fylltu upp með tóniki. Hrærðu einu sinni og skreyttu með appelsínuberki og myntu. Ruby Royale (Fordrykkur · 1 glas · 1 mínúta). Hráefni: 2 cl Kopke Fine Ruby, Kalt freyðivín eða kampavín, Appelsínubörkur. Helltu portvíninu í kampavínsglas. Fylltu varlega upp með freyðivíninu. Snúðu appelsínuberkinum yfir glasinu og settu hann út í. Tawny Old Fashioned (Eftir matinn · 1 glas · 3 mínútur). Hráefni: 5 cl bourbon, 2 cl Kopke 10 ára Tawny, 2 skvettur Angostura-bitter, Appelsínubörkur, Einn stór klaki. Hrærðu bourbon, portvíni og bitter saman með klaka í hálfa mínútu. Síaðu í lágt glas yfir stóra klakann. Kreistu appelsínubörkinn yfir glasinu. Portvínssósa með villibráðinni (Með rjúpu, önd eða hreindýri · fyrir 4 · 30 mínútur). Hráefni: 1 fínt saxaður skalottlaukur, 1 msk. smjör til steikingar, 2 dl Kopke LBV eða Fine Ruby, 4 dl villibráðar- eða andasoð, 1 msk. rifsberjahlaup, 40 g kalt smjör í teningum, Salt og pipar. Mýktu laukinn í smjörinu án þess að hann brúnist. Helltu portvíninu yfir og sjóddu það niður um helming. Bættu soðinu við og sjóddu niður um þriðjung. Hrærðu hlaupinu út í, taktu pottinn af hitanum og þeyttu kalda smjörið út í smátt og smátt. Smakkaðu til með salti og pipar. Öll vínin í sendingunni Vínhúsin: Kopke. Allt um Kopke: sagan frá 1638, Colheita og leiðarvísir um portvínsstíla.