Árgangurinn 2025 af La Tène Pinot Noir er kominn og hann er sá besti sem við höfum fengið. Og nú kemur hvítt með: La Tène Chardonnay er nýtt hjá okkur. Hugmyndin á bak við La Tène er einföld: vín sem bragðast eins og Búrgúndarvín, njóta sín ung og kosta brot af verðinu. Það er Vins Divins í Beaune sem gerir þau. La Tène Pinot Noir 2025: Hreint Pinot Noir úr efri hluta Aude-dalsins í Suður-Frakklandi – kalk og leir í 400 metra hæð. Með hamborgarhryggnum, kalkúninum og pizzunni á Þorláksmessukvöld. La Tène Chardonnay 2025: Nýtt hjá okkur. Hvíta Búrgúndarþrúgan, unnin út frá sömu hugsjón – vín sem minnir á Búrgúnd og nýtur sín ungt. Með síldinni, laxinum og humarsúpunni. Ekrurnar voru valdar vegna þess hve lík jarðlögin þar eru jarðveginum í Búrgúnd. Þetta eru vínin sem gott er að eiga nóg af yfir hátíðirnar: í boðin, á Þorláksmessukvöld og þegar gestir detta óvænt inn. Hvaðan nafnið kemur Við þorpið La Tène á bökkum Neuchâtel-vatns í Sviss fundust árið 1857 yfir 4.500 forngripir. Keltnesk list seinni hluta járnaldar heitir síðan eftir staðnum og þríbrotið á miðanum er þaðan: sólin sem rís, stendur hæst og sest. Meira um La Tène, Vins Divins og feðginin Mike og Cöru.